Erlent

Helmingur af tunglgrjóti NASA er horfið eða týnt

Vísindamenn við NASA, bandarísku geimferðastofnunina, segja að um helmingur af því tunglgrjóti sem geimfarar þeirra komu með úr ferðum sínum til tunglsins fyrir um og yfir 40 árum síðan sé týnt eða horfið.

Um er að ræða tunglgrjót sem flutt var til jarðar í tveimur Apollo ferðum til tunglsins, þeirri seinni í desember árið 1972. Richard Nixon þáverandi forseti Bandaríkjanna ákvað að grjótið sem kom með seinni ferðinni skyldi bútað niður í litla mola og síðan voru þessir molar sendir til 135 þjóðhöfðingja um allan heim sem og til allra 50 ríkja Bandaríkjanna. Hið sama var síðar gert við tunglgrjótið sem kom úr Apollo 11 ferðinni árið 1969.

Í frétt um málið á BBC segir að í heild hafi 370 grjótmolar frá tunglinu verið sendir frá NASA með þessum hætti. Hinsvegar eru 184 af þessum molum horfnir, týndir eða að þeim hefur verið stolið.

Nú er í gangi rannsókn á vegum NASA um afdrif þess grjóts sem er horfið. Mikil eftirspurn er eftir þessu grjóti á svartamarkaðinum og dæmi um að moli sem var 1,4 grömm að þyngd hafi verið boðinn til sölu á fimm milljónir dollara eða vel yfir hálfan milljarð króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×