Erlent

Áheyrnaraðild Palestínu samþykkt

BBI skrifar
Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas.
Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas. Mynd/AFP
Allherjarþing Sameinuðu Þjóðanna samþykkti í kvöld að veita Palestínu stöðu áheyrnarríkis með 138 atkvæðum gegn 9. 41 ríki sat hjá í atkvæðagreiðslunni.

Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, sagði í ræðu fyrir atkvæðagreiðsluna að ef þetta tækifæri yrði ekki nýtt til að veita Palestínu stöðu áheyrnarríkis væru öll tækifæri til að ná friðarsamningum milli ríkjanna tveggja fyrir bí.

Sendiherra Ísraels sagði hins vegar að þessi ályktun myndi ekki stuðla að friði heldur spilla honum enn frekar.

Eftir atkvæðagreiðsluna hefur Palestína stöðu áheyrnarríkis hjá Sameinuðu Þjóðunum, rétt eins og Páfagarður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×