Erlent

NASA birtir myndir af skýstrók á sólinni

Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur birt myndir af skýstrók sem gekk yfir yfirborð sólarinnar. Skýstrókurinn var stærri en Jörðin og teygði anga sína þúsundir kílómetra út í geiminn.

Talið er að snúningshraði skýstróksins hafi verið um 480.000 kílómetrar á klukkustund. Meðalhiti í skýstróknum var 8.000 gráður. Hann var því tiltölulega svalur miðað við yfirborð sólarinnar en þar er hitinn í kringum 2 milljón gráður á selsíus.

Það var könnunarfarið „Solar Dynamics Observatory" (SDO) sem náði myndunum. Skýstrókurinn geisaði í rúmar 30 klukkustundir.

SDO er ætlað að rannsaka sólvirkni og segulsvið sólarinnar.

Vísindamenn hafa ekki haldbæra útskýringu á fyrirbærinu. Þó svo að skýstrókurinn sé svipaður þeim sem myndast hér á Jörðinni er uppruni hans allt annar. Talið að breytingar í segulmagni sólarinnar hafi framkallað skýstrókinn en skýstrókar Jarðarinnar myndast í óstöðugu loft, þegar hlýtt loft þrýstist undir kalt loft.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×