Erlent

Stormur og úrhelli veldur nær 90 viðvörunum um flóð á Bretlandseyjum

Slæmt veður með roki og mikilli rigningu er byrjað að herja á Bretlandseyjum. Búið er að gefa út viðvaranir um flóð á nærri 90 stöðum í Englandi, Wales og Skotlandi.

Einn maður hefur þegar farist í flóði nærri Bath on Stoke þegar bíll hans festist undir brú.

Í frétt um málið á BBC segir að veðurfræðingar reikna með að veður þetta fari versnandi á morgun og sunnudag og að vindstyrkurinn fari þá yfir 30 metra á sekúndu en þessum stormi fylgir mikið úrhelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×