Erlent

Sjóránum undan vesturströnd Afríku fjölgar hratt

Sjóræningjum út af vesturströnd Afríku fjölgar svo hratt þessa daganna að þeir eru að verða meira vandamál en sjóræningjar frá Sómalíu á austurströnd álfunnar.

Nýjar tölur frá danska utanríkisráðuneytinu sýna að sjóræningjastarfsemin undan vesturströnd Afríku kosti ríkin þar yfir 11 milljarða danskra króna eða tæplega 250 milljarða króna á ári. Þar að auki eru þessir sjóræningjar mun grimmari og harðari í aðgerðum sínum en sómölsku sjóræningjarnir.

Vegna aukinna umsvifa þeirra hefur Lloyds tryggingarfélagið skilgreint siglingarleiðir undan vesturströndinni sem stríðssvæði fyrir flutningaskip.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×