Erlent

Jack Nicholson á fölsuðum skilríkjum

Samkvæmt lögreglunni í Brasilíu er Barros lítið sem ekkert líkur Nicholson.
Samkvæmt lögreglunni í Brasilíu er Barros lítið sem ekkert líkur Nicholson. mynd/Sky
Brasilískur maður hefur verið ákærður fyrir skjalafals eftir að hann reyndi að opna bankareikning með fölsuðum skilríkjum. Á skilríkjunum var mynd af leikaranum víðfræga Jack Nicholson.

Hinn 41 ára gamli Ricardo Sergio Freire de Barros var handtekinn í borginni Recife fyrr í vikunni.

Barros var með nokkur fölsuð skilríki. Lögreglan birti skilríkin í þeirri von að þeir einstaklingar sem Barros notaði mynd af hafi samband við yfirvöld.

Það voru þó ein skilríki sem vöktu sérstaka athygli.

Á skilríki stendur nafnið Joao Pedro dos Santos ásamt mynd af stórleikaranum Jack Nicholson. Samkvæmt lögreglunni í Brasilíu er Barros lítið sem ekkert líkur Nicholson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×