Segist ekki njóta trausts 18. febrúar 2012 08:30 Christian Wulf ásamt eiginkonu sinni Bettinu í forsetahöllinni í Berlín, þar sem hann les upp yfirlýsingu um afsögn sína. nordicphotos/AFP
Christian Wulff, forseti Þýskalands, sagði af sér eftir að saksóknari fór fram á að hann yrði sviptur friðhelgi svo hægt verði að rannsaka grun um spillingarmál. Angela Merkel leitar nú að arftaka. Undanfarna tvo mánuði hefur Christian Wulff Þýskalandsforseti setið undir sívaxandi þrýstingi vegna frétta af því að hann hafi þegið ýmsa greiða af vinum sínum meðan hann var forsætisráðherra í Neðra-Saxlandi, einu hinna sextán landa sambandsríkisins Þýskalands. Hann sagði loks af sér í gær þegar saksóknari í Hannover, höfuðstað Neðra-Saxlands, óskaði eftir því að þjóðþingið í Berlín svipti forsetann friðhelgi svo hægt verði að hefja rannsókn á málinu. Wulff sagðist í ávarpi sínu í gærmorgun segja af sér vegna þess að Þýskaland þurfi á forseta að halda sem nýtur trausts yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar. „Þróunin síðustu daga og mánuði hefur sýnt að þetta trúnaðartraust, og þar með möguleikar mínir til að sinna starfi mínu, hefur beðið varanlegan hnekki.“ Hann sagðist samt sannfærður um að rannsókn á málum hans leiði ekkert saknæmt í ljós: „Ég hef alltaf farið að lögum í embættisstörfum mínum. Ég hef gert mistök, en ég hef alltaf verið heiðarlegur.“ Nokkru fyrir jól bárust fyrst fréttir af því að Wulff hefði þegið óvenju hagstætt lán af vini sínum, sem hann notaði til að kaupa sér hús. Stuttu síðar fréttist að Wulff hefði reynt að hindra eða tefja birtingu frétta af þessari lánveitingu, og hefði meðal annars haft í hótunum við ritstjóra dagblaðsins Bild. Síðar kom upp grunur um að þýskur kvikmyndaframleiðandi, David Grönewold, hafi greitt fyrir dvöl Wulffs á lúxushóteli árið 2007. Þá hafi Wulff þegið fleiri greiða af Grönewold og hugsanlega veitt honum einhverja greiða í staðinn. Forseti Þýskalands er kosinn af þjóðþingi landsins, þannig að nú hefst leit að forsetaefni sem meirihluti þingmanna getur stutt. Wulff var forsetaefni hægrimanna þegar hann var kosinn fyrir tveimur árum. Margvíslegt ósætti innan stjórnarflokkanna gerir það að verkum að Angela Merkel kanslari segist nú vilja forsetaefni sem nýtur stuðnings allra flokka á þingi – að undanskildum Vinstriflokknum sem er arftaki gamla Kommúnistaflokksins í Austur-Þýskalandi.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Meirihluti þeirra sem taka afstöðu andvíg aðild að ESB Innlent Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Erlent Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda íbúa Innlent Vitað um tíu dauðsföll af völdum eldinga hér á landi Innlent Hegðun Trumps vonbrigði Innlent Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Innlent Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Erlent Fleiri fréttir Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Sjá meira