Erlent

Ísak gengur yfir Haiti

BBI skrifar
Hitabeltisstormurinn Ísak gengur nú yfir Haiti. Þar er búið að spá miklum aurskriðum og flóðum. Óttast er um fjölda fólks, sérstaklega þá 400 þúsund íbúa sem enn búa í brágðabirgðatjöldum eftir jarðskjálftann mikla árið 2010.

Styrkur stormsins hefur aukist síðan hann gekk á land á Haítí. Síðar í dag mun hann svo ganga yfir Kúbu þar sem yfirvöld hafa mikinn viðbúnað. Hann mun svo líklega ganga á land í Flórída á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×