Erlent

Sextán látnir í Costa Concordia

mynd/AFP
Tala látinna í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia er nú komin í sextán eftir að björgunarmenn fundu annað lík í skipinu í dag. Enn er 16 saknað.

Stjórnendur björgunaraðgerða hafa heitið því að ljúka ekki leit fyrr en öll rými skipsins hafa verið skoðuð. Ekki er vitað með vissu hvenær hægt verður að hefja dælingu á olíu úr skipinu en björgunarmenn vinna nú hörðum höndum að undirbúningi þess.

Rúmlega 2.000 tonn af olíu eru um borð í Costa Concordia - litlar líkur eru þó á að olían muni leka úr skipinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×