Fundu átta tonn af kókaíni í bananasendingu Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 13. október 2012 12:44 En jákvæða fleti má þó finna. Eftir að ávextirnir höfðu verið rannsakaðir var ákveðið að leyfa sendingunni að halda áfram til Rotterdam. Voru þeir fluttir í Blijdorp dýragarðinn þar sem apar og önnur dýr gæddu sér á þeim.
Lögreglan í Belgíu lagði hald á rúmlega átta tonn af kókaíni í banasendingu frá Ekvador. Um er að ræða eitt stærsta smyglmál síðari tíma í Evrópu. Það var í byrjun vikunnar sem tollverðir og lögregla í hafnarborginni Antwerpen lögðu hald á efnin. Þau fundust í bananasendingu sem kom sjóleiðis frá Ekvador en áfangastaður þeirra var Rotterdam. Saksóknari í Hollandi sagði í gær að rúmlega átta tonn af kókaíni hefðu verið í sendingunni og að efnin hefðu verið vandlega falin undir banönunum í rúmlega sjö þúsund pökkum. Er þetta stærsta smyglmál sem komið hefur upp í Hollandi. Fjórir Hollendingar hafa verið handteknir vegna málsins sem og einn belgískur vörubílstjóri. Mennirnir voru með tölu leiddir fyrir dómara í Rotterdam í gær. Áætlað söluverðmæti efnanna er fimm hundruð milljónir evra eða það sem nemur áttatíu milljörðum íslenskra króna. En jákvæða fleti má þó finna. Eftir að ávextirnir höfðu verið rannsakaðir var ákveðið að leyfa sendingunni að halda áfram til Rotterdam. Voru þeir fluttir í Blijdorp dýragarðinn þar sem apar og önnur dýr gæddu sér á þeim.
Mest lesið Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Erlent Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Innlent Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Innlent Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Innlent Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Erlent Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Fleiri fréttir Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Sjá meira