Erlent

Aldrei fleiri nauðganir tilkynntar í Ósló

ÞJ skrifar
Aldrei hafa fleiri nauðganir verið tilkynntar í Ósló en í fyrra. Ný skýrsla sýnir að meira er um að nauðganir eigi sér stað utan dyra í skjóli nætur. NordicPhotos/Getty
Aldrei hafa fleiri nauðganir verið tilkynntar í Ósló en í fyrra. Ný skýrsla sýnir að meira er um að nauðganir eigi sér stað utan dyra í skjóli nætur. NordicPhotos/Getty
Tilkynningum um nauðganir og nauðgunartilraunir hefur fjölgað stöðugt hjá lögreglunni í Ósló síðasta áratug og þær hafa aldrei verið fleiri en einmitt í fyrra. Dagbladet segir frá þessu á vef sínum.

213 nauðganir voru tilkynntar í Ósló í fyrra, sem er veruleg aukning frá árinu 2010 þegar 162 nauðganir voru tilkynntar. Séu nauðgunartilraunir taldar með, eru tölurnar 256 fyrir 2011 og 189 fyrir 2010.

Í skýrslunni kemur fram að 58 prósent nauðgara hafi verið ókunnug þolendum, en það er hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr.

Þá er tilfellunum skipt upp eftir kringumstæðum og kemur þar í ljós að rúmur þriðjungur nauðgana og tilrauna til nauðgana er framinn í tengslum við samkomur fólks, samkvæmi eða skemmtanalíf. Tæpur fimmtungur nauðgana er framinn af ættingja eða fjölskyldumeðlim og fimmtán prósent nauðgana eru svokallaðar árásarnauðganir þar sem ráðist er á þolanda á almannafæri, yfirleitt í skjóli nætur, en í fyrra átti tæpur fjórðungur nauðgana og tilrauna til nauðgana, sér stað utandyra.

Athygli vekur einnig að þó að flestir sem kærðir eru fyrir nauðgun séu norskir ríkisborgarar, eru nær tveir þriðju af öðrum uppruna en norskum. Rúm tuttugu prósent eru frá Afríku, þrjátíu prósent frá Asíu eða Mið-Austurlöndum og tólf prósent af evrópskum uppruna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×