Erlent

Fornmenn stálu bráð frá ljónum

Hræið af Yuka
Hræið af Yuka
Rannsóknir á heillegu hræi af ungum mammúti sýna að bæði ljón og menn áttu þátt í dauða hans á sléttum Síberíu fyrir um 10 þúsund árum. Það þykir benda til þess að hópar veiðimanna hafi stolið bráð af ljónum, samkvæmt frétt BBC.

Mammúturinn, sem kallaður er Yuka, er talinn hafa verið á þriðja ári þegar hann var felldur. Hræið hefur varðveist vel í sífreranum og hefur ljósgullinn feldurinn vakið sérstaka athygli. Hræið þykir gefa mikilvægar vísbendingar um veiðimenn á þeim tíma sem hann var veiddur, og hvers þeir hafi verið megnugir. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×