Omnishambles eða allsherjarklúður er nýyrði ársins í ensku 14. nóvember 2012 06:16
Forráðamenn ensku orðabókarinnar í Oxford hafa ákveðið að velja orðið Omnishambles sem nýyrði ársins í enskri tungu. Lauslega mætti þýða þetta orð yfir á íslensku sem allsherjarklúður. Á vefsíðu BBC er ítarlega greint frá þessu vali forráðamanna Oxford orðabókarinnar og þeim möguleikum öðrum sem voru til staðar. Orðið omnishambles kom fyrst fram í ensku máli í sjónvarpsþáttaröðinni The Thick of It sem er pólitísk háðsádeila og var sýnd á BBC árið 2009. Það er hinsvegar fyrst í ár sem orðið hefur náð verulegri útbreiðslu meðal enskumælandi fólks. Það gerðist í framhaldi af því að orðinu var breytt í Romneyshambles til að skýra allt klúðrið í kosningabaráttu Mitt Romney í Bandaríkjunum. Meðal annarra orða sem komu til greina í ár má nefna orðtakið mommy porn eða mömmuklám en það orð var myndað eftir útkomu bókarinnar 50 gráir skuggar. Þá segir að orðið pleb hafi einnig komið til greina. Raunar er þar ekki um nýyrði að ræða enda hefur orðið verið til frá tímum Rómverja. Þá þýddi það lægstu stéttirnar eða almúgann. Það kostaði breskan ráðherra stöðu sína í sumar að hafa öskrað þetta orð að lögreglumanni á vakt fyrir utan Downingstræti 10. Pleb er til sem slanguryrði á íslensku og þá sem plebbi sem þýtt er sem rusti eða deli í íslensku slanguryrðabókinni. Raunar mætti einnig þýða þetta orð sem auli.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Sjá meira