Keflavík lagði Stjörnuna (sjáið mörkin) | Skaginn sigraði ÍBV Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. febrúar 2012 20:30 Þórsarar nýta bæjarferðina og mæta Fjölni í Egilshöll á morgun.
Keflvíkingar lögðu Stjörnuna af velli 3-2 í Reykjaneshöll í dag. Þá unnu Skagamenn góðan sigur á ÍBV á Akranesi og Breiðablik rúllaði upp BÍ/Bolungarvík. Leikið var í öllum riðlum keppninnar í dag.Riðill 1 Breiðablik tók BÍ/Bolungarvík í kennslustund í Riðli 1. Lokatölurnar urðu 7-0 Blikum í vil þar sem Árni Vilhjálmsson skoraði tvö mörk. Blikar hafa unnið báða leiki sína í riðlinum en Vestfirðingar tapað báðum sínum. Tapið var vafalítið sérstaklega sárt fyrir Jörund Áka Sveinsson, þjálfara Vestfirðinga, sem þjálfaði hjá Breiðabliki um árabil.Riðill 2 Fyrri hálfleikur í viðureign Keflavíkur og Stjörnunnar var sérstaklega fjörlegur en að honum loknum var staðan 2-2. Bræðurnir Magnús Sverrir Þorsteinsson og Þorsteinn Þorsteinsson voru báðir á skotskónum hjá Keflavík líkt og sonur þjálfarans, Bojan Stefán Ljubicic. Tryggvi Sveinn Bjarnason og Gunnar Örn Jónsson skoruðu mörk Stjörnunnar. Mörkin úr viðureign Keflavíkur og Stjörnunnar má sjá hér. Skagamenn sigruðu ÍBV í Akraneshöll með tveimur mörkum gegn einu. Arnar Már Guðjónsson og Gary Martin skoruðu fyrir heimamenn en Víðir Þorvarðarson mark Eyjamanna. KA lagði ÍR með tveimur mörkum gegn engu í Boganum. Jóhann Helgason skoraði fyrra mark heimamanna og Gunnar Valur Gunnarsson það síðara. Þá lagði Víkingur Reykjavík lið Tindastóls með fjórum mörkum gegn engu. Patrk Atlason, Viktor Jónsson, Hjörtur Júlíus Hjartarson og Þórður Rúnar Friðjónsson skoruðu mörk Víkinga. Víkingur og Skagmenn eru með sex stig að loknum tveimur leikjum. Stjarnan, Keflavík, KA og ÍBV hafa þrjú stig og ÍR og Tindastóll reka lestina stigalaus.Riðill 3 Þórsarar lögðu Fylkismenn með einu marki gegn engu í Egilshöll. Sigurður Marinó Kristjánsson skoraði eina markið í fyrri hálfleik. Þórsarar eru á toppi riðilsins með sex stig. Upplýsingar um markaskorara frá fotbolti.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára strákur drukknaði Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum Enski boltinn Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Sjá meira