Kusu uppreisnarmenn til valda 5. mars 2012 02:00 Kosið í Wukan Lýðræðisbylting í litlu kínversku þorpi. nordicphotos/AFP
Tveir uppreisnarleiðtogar í þorpinu Wukan í Kína voru kosnir til valda á laugardaginn, fáeinum mánuðum eftir að þeir voru handteknir fyrir að efna til fjölmennra mótmæla í þorpinu. Þáverandi þorpsyfirvöld voru sökuð um að hafa án heimildar selt landsvæði, sem þorpsbúar höfðu notað til landbúnaðar. Í desember færðist aukin harka í mótmælin, skemmdir voru unnar á lögreglustöð og bifreiðum. Í kjölfarið voru nokkrir helstu leiðtoganna handteknir, en þá brugðust þorpsbúar við með því að reisa víggirðingar og meinuðu lögreglu aðgang að þorpinu. Mikil samstaða var meðal þorpsbúa um málið og fór svo að yfirvöld gáfu eftir og efnt var til kosninga. Í kosningunum höfðu 23 lýst yfir framboði, en kjósendur gátu engu að síður greitt hverjum sem er atkvæði sitt. Nærri þrír áratugir eru síðan kínverskir ráðamenn heimiluðu frjálsar kosningar til bæjarstjórna, en í reynd hafa áhrif Kommúnistaflokksins oftast ráðið miklu um niðurstöðuna. Kosningarnar í Wukan nú á laugardag sýna hins vegar að þau áhrif hafa lítil sem engin verið. Þorpsbúar víðar í Kína sjá nú möguleika á að fara að fordæmi Wukanbúa. - gb
Mest lesið Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Innlent Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við Innlent Fleiri fréttir Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Segir Spánverja munu borga fyrir að borga ekki nóg Lögðu grunninn að „sterkara, sanngjarnara og banvænna“ NATO Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Biðst afsökunar á gyðingahatri Svíþjóðardemókrata Diddy ætlar ekki að bera vitni Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Bretar eignast aftur herþotur sem geta flutt kjarnorkuvopn Myndaveisla: Fyrsti dagur leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins Æsispennandi forval: Framtíð Demókrataflokksins gæti ráðist í New York Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Sjá meira