Erlent

Tímamótareikistjörnufundur

Reikistjarnan sem fannst á dögunum markar nokkur tímamót. 
Mynd/ESO
Reikistjarnan sem fannst á dögunum markar nokkur tímamót. Mynd/ESO
Evrópskir stjörnufræðingar hafa fundið reikistjörnu, álíka massamikla og jörðina, á braut um stjörnu í Alfa Centauri-kerfinu, sem er nálægasta stjörnukerfi við jörðina, í um 4,3 ljósára fjarlægð. Þetta kemur fram á Stjörnufræðivefnum.

Um er að ræða stórmerka uppgötvun, enda í fyrsta sinn sem reikistjarna með massa á við jörðina finnst í kringum stjörnu sem líkist sólinni okkar. Hún er þó of nálægt sinni móðurstjörnu og því alltof heit til þess að líf eins og við þekkjum það geti þrifist þar. Hún gefur þó von um að fleiri reikistjörnur sé að finna í kerfinu.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×