Segir neitun Rússa skrípaleik 6. febrúar 2012 03:45 Bashir al-Assad, fyrir miðri mynd, ásamt Mohammed Abdelsattar Sayyed trúmálaráðherra og Ahmed Hassun, æðsta guðfræðiráðgjafa stjórnvalda, á bæn í tilefni af fæðingardegi Múhameðs spámanns.nordicphotos/AFP
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hvetur „vini lýðræðislegs Sýrlands“ til þess að standa saman gegn Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. Hún kallar það skrípaleik að Rússar og Kínverjar hafi beitt neitunarvaldi sínu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn ályktun, sem ætlað var að þrýsta á Assad forseta og stjórn hans. Riad al-Asaad, yfirmaður í bardagsveitum liðhlaupa úr sýrlenska hernum, segir að nú þegar ljóst er að öryggisráðið styður ekki aðgerðir gegn Sýrlandsforseta, þá sé þeim sá kostur nauðugur að berjast vopnaðri baráttu fyrir frelsi landsins. Hernaður sé eina leiðin úr því sem komið er. „Neitunin er ekki heimsendir,“ skrifaði aftur á móti Radwan Ziadeh, einn leiðtoga stjórnarandstæðinga, á Facebook-síðu sinni. „Byltingin heldur áfram og verður sigursæl, ef guð lofar.“ Ziadeh sagðist reikna með að Frakkar, Bandaríkin og arabaríki muni styðja her uppreisnarmanna til hernaðar gegn stjórninni. Bandaríkin og nokkur Evrópuríki hafa fullyrt að eina leiðin til að friða ástandið í Sýrlandi sé brotthvarf Sýrlandsforseta. Rússar og Kínverjar vildu ekki fallast á ályktun sem væri yfirlýsing um stuðning við áætlun Arababandalagsins, þar sem í þeirri áætlun er afsagnar Assads forseta krafist.- gb
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Innlent Fleiri fréttir Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Sjá meira