Kári eftirsóttur í Frakklandi og Englandi Hans Steinar Bjarnason skrifar 23. janúar 2012 10:00 Kári Árnason. Nordic Photos / Getty Images
Tvö félög úr frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og tvö úr ensku B-deildinni hafa lýst yfir áhuga Kára Árnasyni leikmanni Aberdeen í Skotlandi. David Winnie umboðsmaður Kára staðfesti þetta í samtali við Stöð 2 en vildi ekki gefa upp um hvaða félög væri að ræða. „Það verður erfitt fyrir Aberdeen að halda Kára. Þetta er ekki ríkt félag og getur ekki boðið há laun. Kári hefur verið frábær hjá Aberdeen í vetur og það kæmi mér ekki á óvart ef hann endurheimtir sæti sitt í íslenska landsliðinu. Það væri í raun eðlileg þróun að þegar um gæðaleikmann er að ræða eins og Kára að hann fari í sterkari deild," sagði Winnie. Kári hefur slegið í gegn með Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni síðan hann gekk í raðir liðsins eftir að hann var látinn fara frá enska D-deildarliðinu Plymouth í fyrra. Kári skoraði glæsilegt mark fyrir Aberdeen í óvæntu 1-1 jafntefli gegn Glasgow Rangers um helgina og Craig Brown knattspyrnustjóri vill halda leikmanninum. „Við höfum gert honum mjög gott tilboð og vonandi fáum við svar fljótlega. Það sjá allir hversu hæfileikaríkur leikmaður hann er og því býst ég alveg eins við því að hann geri meiri kröfur," sagði Brown við BBC. Ekki lítur þó út fyrir að Kári taki tilboðinu. „Ég kann mjög vel við mig hjá Aberdeen og væri alveg til í að vera hérna áfram. En ég á erfitt með að sætta mig við það sem þeir eru að bjóða. Þeir verða þá að koma meira til móts við mig. Mér finnst ég hafa staðið mig það vel að ég eigi skilið betri samning," sagði Kári við Stöð 2 en samningur hans við Aberdeen rennur út í sumar.
Fótbolti Mest lesið Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Handbolti Fá meira fyrir níu pílna legg heldur en að vinna mótið Sport Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Handbolti Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Fótbolti Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið Handbolti Fleiri fréttir Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Salah klúðraði vítaspyrnu er Nígería tók þriðja sætið Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Ísaki fórnað í langþráðum sigri Kölnar Birta hetja Genoa í frumrauninni Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Sjá meira