Fótbolti

Eiður lagði upp mark í jafntefli Cercle | Úrslit úr leikjum Íslendinganna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen léku allan leikinn með Cercle Brugge sem gerði 2-2 jafntefli við Waasland-Beveren í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Heimamenn komust yfir snemma leiks og bættu við öðru marki eftir undirbúnings Eiðs Smára þegar ellefu mínútur lifðu leiks. Gestirnir gáfust þó ekki upp, skoruðu tvö mörk á fjórum mínútum og tryggðu sér annað stigið.

Cercle er enn á botni deildarinnar með 13 stig en fjögur stig eru í næsta lið fyrir ofan.

Stefán Gíslason lék allan leikinn með OH Leuven sem gerði 2-2 jafntefli gegn Liers. Ólafur Ingi Skúlason var allan tímann á bekknum í 1-1 jafntefli Mons og Zulte-Waregem.

Leuven er í 9. sæti deildarinnar með 27 stig en Zulte-Waregem í 2. sæti með 40 stig.

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn með NEC Nijmegen í 2-0 tapi gegn Ado Den Haag í efstu deild hollensku knattspyrnunnar. Guðlaugur Victor lék á miðjunni og fékk áminningu í leiknum.

Nijmegen er í 7. sæti deildarinnar með 24 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×