Erlent

Snákur í flugvél - í alvöru

Úr kvikmyndinni Snakes on a plane.
Úr kvikmyndinni Snakes on a plane.
Líklega héldu flestir að hugmyndin um snák í flugvél væri aðeins eitthvað sem hugmyndaríkir framleiðendur í Hollywood gætu látið sér detta í hug. En veruleikinn lætur ekki að sér hæða, mexíkóskur snákur, 45 sentímetrar að lengd, fannst undir farþegasæti flugvélar sem var á leiðinni til Glasgow í Skotlandi síðastliðinn Þriðjudag.

Það var starfsfólk flugvélarinnar, sem var að koma frá Cancun í Mexíkó, sem tóku eftir snáknum. Starfsmennirnir brugðust yfirvegað við og tókust að handsama snákinn án mikilla átaka. Snákurinn er ekki eitraður, en getur verið nokkuð skapillur þegar að honum er vegið.

Í stað þess að drepa skriðdýrið var það flutt í dýramiðstöð í Glasgow þar sem snákurinn hefur verið nefndur Fertivo, sem er spænskt orð og gæti útlaggst á íslensku sem læðupúki.

Samkvæmt fréttavef AP er ekki ljóst hvernig læðupúkinn komst um borð í flugvélina. Talið er líklegast að hann hafi smyglað sér í handfarangur einhvers farþegans án þess að hann hafi orðið þess var.

Þess má geta að kvikmyndin Snakes on plane með Samuel L. Jackson sló í gegn um árið, aðallega vegna þess að hugmyndin þótti beinlínis fjarstæðukennd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×