Fjórar mannskæðar árásir í Sýrlandi 19. mars 2012 03:00 Sýrlenskur drengur stendur við kistu föður síns sem fórst í sprengjuárás í höfuðborginni Damaskus á laugardaginn.mynd/afp
Öflug bílsprengja sprakk skammt frá öryggisbyggingu sýrlensku ríkisstjórnarinnar í borginni Aleppo í gær. Yfirvöld í Sýrlandi segja að hryðjuverkamenn hafi staðið á bak við sprenginguna. Bættu þau við að einn lögreglumaður og einn almennur borgari hafi farist í sprengingunni og þrjátíu til viðbótar hafi særst. Þetta var önnur árásin í landinu á tveimur dögum. Á laugardag fórust 27 manns í þremur sjálfsmorðssprengjuárásum í höfuðborginni Damaskus. Stjórnvöld segja að árásirnar tengist uppreisninni gegn forsetanum Bashar al-Assad sem hefur staðið yfir í eitt ár. Sýrlenska þjóðarráðið, samtök stjórnarandstæðinga, hafa á móti sakað yfirvöld um að standa á bak við sumar sprengingarnar til að vekja ótta hjá almenningi og sýna fram á að uppreisnarsinnarnir séu hryðjuverkamenn. Margar sjálfsmorðsárásir hafa verið gerðar í Aleppo og Damaskus, tveimur stærstu borgum Sýrlands, frá því í desember. Mikill stuðningur er við Assad í báðum borgunum. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á árásunum um helgina á hendur sér. Sameinuðu þjóðirnar telja að yfir átta þúsund manns hafi látist í átökunum á þessu eina ári. Bandarísk yfirvöld telja að Íranar séu að aðstoða sýrlensk stjórnvöld með því að sjá þeim fyrir vopnum í baráttunni við stjórnarandstæðinga. Írakar hafa viðrað áhyggjur sínar við sendiherra Írans í Bagdad vegna málsins. Lítið eftirlit er með lofthelginni yfir Írak og því er auðvelt að flytja vopn frá Íran yfir til Sýrlands. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Fleiri fréttir Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sjá meira