Munu dvelja í eitt ár í ISS 26. nóvember 2012 16:18 Alþjóðlega geimstöðin, ISS. MYND/NASA
Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, hyggst brjóta blað í sögu geimvísindanna árið 2015 en þá munu tveir geimfarar hefja tólf mánaða dvöl sína í Alþjóðlegu geimstöðinni, ISS. Bandaríkjamaðurinn Scott Kelly og rússneski geimfarinn Míkhail Korníenkó munu sinna hefðbundnum rannsóknarstörfum í geimstöðinni en samhliða þeim verður líkamleg og andleg líðan þeirra könnuð. Verkefnaáætlun NASA gerir ráð fyrir nokkrum löngum geimferðum á næstu árum og því þykir nauðsynlegt að rannsaka áhrif slíkra verkefna á mannslíkamann. NASA stefnir meðal annars á að lenda á fjarlægu smástirni fyrir árið 2025. Þá er sem fyrr lögð áhersla á að heimsækja Mars á einhverjum tímapunkti. Kelly, sem er 48 ára gamall, er reyndur flugmaður hjá bandaríska sjóhernum en hann hefur einnig stýrt nokkrum geimferðum. Korníenkó er 52 ára gamall. Um árabil gegndi hann herþjónustu í Rússlandi og var á tíma fallhlífahermaður. Hann gekk til liðs við geimvísindastofnun Rússlands árið 1998. Félögunum verður skotið á loft á vormánuðum 2015 og lenda að einu ári liðnu. En þó svo að verkefnið sé sannarlega metnaðarfullt þá er ekki um heimsmet að ræða. Rússneski geimfarinn Valerí Polýakov hafði aðsetur í geimstöðinni Mír í 438 daga um miðjan tíunda áratuginn.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira