Von á fimm þúsund gestum í jarðarförina 16. desember 2012 13:37
Jacintha Saldanha, hjúkrunarfræðingurinn sem svipti sig lífi eftir að hafa orðið fyrir barðinu á símahrekk ástralskra útvarpsmanna, verður jörðuð á morgun en lík hennar kom til Indlands í nótt. Búist er við yfir fimm þúsund manns í jarðarförina. Saldanha tók við símtalinu frá úvarpsmönnunum, sem sögðust vera Elísabet Bretlandsdrottning og Karl Bretaprins. Þau óskuðu eftir upplýsingum um líðan Katrínar Middleton, eiginkonu Vilhjálms prins, sem ber barn undir belti og dvaldi á spítala Játvarðs sjöunda vegna morgunógleði. Saldanha sendi útvarpsmennina áfram á annan hjúkrunarfræðing sem sagði þeim frá því hvernig hertogaynjunni leið. Þremur dögum síðar fannst hún látin en svo virðist sem hún hafi tekið hrekkinn svo nærri sér að hún svipti sig lífi. Lík hennar var flutt til borgarinnar Manglore á Indlandi í nótt en hún er ættuð frá Indlandi og hafði starfað í Englandi í tíu ár. Ráðherrar landsins og stjórnmálamenn í borginni tóku á móti fjölskyldu hennar á flugvellinum í nótt. Að sögn breska ríkisútvarpsins hefur dauði Saldönhu vakið mikla athygli á Indlandi, sérstaklega í bænum þar sem hún ólst upp. Í síðustu viku var haldin athöfn í minningu hennar. Spítalinn í bænum þar sem hún lærði hjúkrunarfræði hefur gefið það út að hennar verður minnst um ókomna tíð á spítalanum. Jarðarförin fer fram á morgun og er búist við að yfir fimm þúsund manns mæti í kirkjuna.
Tengdar fréttir „Það er tómarúm í lífi okkar“ Börn hjúkrunakonunnar sem svipti sig lífi eru harmi slegin. 15. desember 2012 20:01 Lofa að endurskoða starfsreglur áströlsku útvarpsstöðvarinnar Eigendur útvarpsstöðvarinnar sem hringdi í hjúkrunarfræðing sem sinnti Kate Middelton, eiginkonu Vilhjálms Prins, hafa lofað að endurskoða starfsreglur útvarpsstöðvarinnar. 9. desember 2012 13:45 Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Innlent Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Fleiri fréttir Skammaði fréttakonu fyrir að brosa ekki Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Einungis einn herforingi eftir í miðstjórn kínverska hersins Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Sjá meira
„Það er tómarúm í lífi okkar“ Börn hjúkrunakonunnar sem svipti sig lífi eru harmi slegin. 15. desember 2012 20:01
Lofa að endurskoða starfsreglur áströlsku útvarpsstöðvarinnar Eigendur útvarpsstöðvarinnar sem hringdi í hjúkrunarfræðing sem sinnti Kate Middelton, eiginkonu Vilhjálms Prins, hafa lofað að endurskoða starfsreglur útvarpsstöðvarinnar. 9. desember 2012 13:45