Fótbolti

Eiður Smári: Ég vil taka síðustu árin með trompi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eiður Smári á æfingu landsliðsins á mánudag.
Eiður Smári á æfingu landsliðsins á mánudag. Mynd/Anton
„Þetta er skringileg staða hjá mér að vera ekki hjá félagsliði en vera valinn í landsliðshópinn," segir Eiður Smári Guðjohnsen en Íslendingar mæta Færeyingum í æfingaleik á Laugardalsvelli annað kvöld.

„Við Lars áttum fínan fund fyrir rúmri viku og í kjölfarið ákváðum við í sameiningu að ég myndi mæta. Engar væntingar þannig séð heldur vildum við bara kynnast hvor öðrum. Hann vildi sjá mig innan hópsins. Við höfum ekki rætt hvort ég fái einhverjar mínútur eða hvort ég sé í standi til þess. Það verður að koma í ljós," segir Eiður Smári sem var síðast í liði Íslands sem lagði Kýpur 1-0 á Laugardalsvelli í undankeppni EM 2012 fyrir tæpu ári.

„Það er smátími síðan ég var síðast með landsliðinu. Ég lenti í erfiðum meiðslum og gott að vera kominn á lappir aftur. Ég hef reynt að æfa og halda mig í eins góðu standi og hægt er miðað við það að vera að æfa einn," segir Eiður Smári sem er í leit að nýju félagi.

„Fyrst það er komið á þennan tímapunkt getur það dregist út mánuðinn þó svo að ég voni að það klárist í náinni framtíð. Það er ekkert komið á hreint," segir Eiður sem veit þó af áhuga.

„Það eru alls konar tilboð að berast að víða úr heiminum. Ég verð að sjá hvað er rétta skrefið en aðalatriðið er að ég er heill," segir Eiður og segist í raun vera opinn fyrir öllu.

„Ég geri svo sem engar kröfur nema þeirra til sjálfs míns að ég njóti þess að spila fótbolta. Það var kannski ástæðan fyrir því að ég fór til Grikklands að ég sá fram á að spila hvern einasta leik. Það er erfitt og leiðinlegt að lenda í meiðslum á þeim tímapunkti þegar mér fannst ég vera að nálgast mitt besta form. Aðstæður í Grikklandi og hjá félaginu voru erfiðar og því ekkert annað í stöðunni en að losa sig þaðan," segir Eiður Smári sem fótbrotnaði í leik með AEK í október síðastliðnum.

„Það er auðvitað pínulítil eftirsjá að hafa ekki valið eitthvað annað (en AEK) en maður verður að standa með ákvörðunum sínum. Eftir á að hyggja er þetta allt lífsreynsla, sama hvað maður gerir og í hverju maður lendir, og reynir að koma sterkari tilbaka," segir Eiður Smári sem er á 34. aldursári og telur sig hafa ýmislegt fram að færa.

„Það er nægur kraftur í mér ennþá og það eina sem vantar eru reglulegar æfingar og að spila reglulega. Það er nægur kraftur og hugur í mér til að taka síðustu árin með trompi," segir markahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins frá upphafi.

Landsleikur Íslands og Færeyja hefst á Laugardalsvelli klukkan 19.45 á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×