Gomez með sigurmark Þjóðverja á móti Portúgal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júní 2012 00:01 Mynd/AP
Mario Gomez tryggði Þjóðverjum 1-0 sigur á Portúgal á EM í kvöld með frábærum skalla 18 mínútum fyrir leikslok en þetta var fyrsta leikur liðanna í B-riðli Evrópumótsins í fótbolta. Þjóðverjar eru á toppi riðilsins ásamt Dönum sem unnu Hollendinga óvænt fyrr í dag. Þjóðverjar voru langt frá því að vera sannfærandi í þessum leik en þeir unnu þarna mikilvægan seiglusigur og eru áfram til alls líklegir á þessu móti. Portúgalir spiluðu skipulega og voru nokkrum sinnum nálægt því að skora undir lokin en það tókst ekki. Þjóðverjar byrjuðu af krafti í leiknum en fljótlega datt leikur liðsins niður og þeim gekk illa að skapa sér færi á móti skipulögðu portúgölsku liði. Portúgalir voru alltaf hættulegir í skyndisóknum sínum og þeir áttu líka besta færi hálfleiksins þegar Pepe skaut í slánna og niður á lokamínútu fyrri hálfleiksins. Það var lítið um færi í seinni hálfleiknum en Þjóðverjar náðu að skora markið sitt á 72. mínútu þegar Mario Gomez skoraði með flottum skalla eftir fyrirgjöf frá Sami Khedira. Þegar Gomez skoraði markið sitt þá leit út fyrir að hann væri á leiðinni útaf fyrir Miroslav Klose en Gomez fékk nokkrar mínútur til viðbótar eftir markið. Portúgalir sóttu í sig veðrið á lokakafla leiksins. Fyrirgjöf Nani endaði ofan á slánni á 85. mínútu og á 88. mínútu fékk varamaðurinn Silvestre Varela dauðafæri en Manuel Neuer varði frábærlega. Nani skaut líka í varnarmann úr góðu færi í uppbótartíma leiksins. Þjóðverjar héldu hinsvegar út og fögnuðu mikilvægum sigri.
Mest lesið Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Ánægðir með stælana í Hauki: „Sagði bara fokkaðu þér“ Handbolti Óvinur Íslands: „Aldrei stríða heilu landi“ Handbolti Sænska goðsögnin: Þeir hafa ekki viljann sem Íslendingar hafa Handbolti „Við mættum ótrúlega góðu íslensku liði í dag“ Handbolti Sjáðu myndirnar: Svíarnir gjörsigraðir á einu besta kvöldi strákanna okkar Handbolti Dagur vann líka og nú eru fjögur lið með fjögur stig í íslenska riðlinum Handbolti „Svo kemur Ómar Ingi og fer að spila eins og Viggó“ Handbolti Skýrsla Vals: Vel nýttur veikindadagur Handbolti Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Hákon í leikbanni og Lille steinlá á heimavelli Orri sneri aftur eftir meiðsli Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Sjáðu Yamal skora „besta mark tímabilsins“ Tókst bara að jafna gegn tíu mönnum í toppslagnum Logi skoraði sjálfsmark í sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Heiðdís leggur skóna á hilluna Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Mbappé skaut Real Madrid upp í toppsætið Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Hákon framlengdi við Lille til 2030 Alberti og félögum mistókst að komast upp úr fallsæti Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Bayern tapaði deildarleik í fyrsta sinn á tímabilinu Alfons fer aftur til Hollands Elísa fer frá Val til Breiðabliks Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sandra fiskaði víti og fagnaði sigri í Íslendingaslag Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Sjá meira