Tóku á sig afskriftir fyrir Grikki 9. mars 2012 03:15
Grikkland náði í gær mikilvægum áfanga í baráttunni við skuldavanda þegar lánadrottnar ríkissjóðs í einkageirunum samþykktu niðurfærslu og breytingu skulda. Einkaaðilar, til dæmis bankar, lífeyrisjóðir og vogunarsjóðir, sem áttu samtals 177 milljarða evra inni hjá gríska ríkinu, höfðu frest til gærkvöldsins til að taka sjálfviljugir þátt í skuldbreytingingunni, sem felur í sér afskriftir á skuldum, lækkun vaxta og frestun afborgana. Skuldalækkunin er talin munu nema 107 milljörðum evra, að jafngildi 17.700 milljarða íslenskra króna. Til þess að skuldbreytingin yrði að veruleika þurftu að minnsta kosti þrír fjórðu einkaaðilanna að samþykkja niðurfellingu síns hluta og sú varð raunin þó að ekki hafi legið fyrir í gærkvöldi hversu margir neituðu að taka þátt. Þetta hlutfall dugar til þess að gríska ríkið geti skuldbundið þau fyrirtæki til þátttöku. Ekki eru þó allir á því að þessi aðgerð muni duga til, þar á meðal Peter Bofinger, aðstoðarmaður Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Hann segir í viðtali við Bloomberg fréttastofuna að skuldirnar verði Grikkjum áfram mjög erfiðar og næst muni önnur ríki og seðlabankar þurfa að fella niður hluta af skuldum gríska ríkisins. „Og það þarf að gerast á næstu tólf mánuðum," sagði Bofinger. - gb, þj
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira