Stjórnarskránni þarf að breyta 18. janúar 2012 03:00 Stefan Füle og José Manuel Barroso stækkunarstjóri Evrópusambandsins og forseti framkvæmdastjórnar þess. nordicphotos/AFP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að nokkur ákvæði nýrrar stjórnarskrár, sem tók gildi í Ungverjalandi um áramótin, standist ekki reglur Evrópusambandsins. Stjórnarskránni þurfi því að breyta aftur, að öðrum kosti mega Ungverjar búast við refsiaðgerðum af hálfu ESB. „Ungverjaland er lykilþátttakandi í Evrópufjölskyldunni og við viljum ekki að minnsti vafi leiki á því hvort þar sé borin virðing fyrir lýðræðisreglum og -gildum,“ sagði José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB. Evrópusambandið krefst svara frá ungverskum stjórnvöldum innan mánaðar og gefur sér síðan tvo mánuði til að fara yfir þau svör. Um er að ræða ákvæði sem brjóta gegn reglum ESB um sjálfstæði seðlabanka og persónuvernd, ásamt ákvæðum um lækkun eftirlaunaaldurs dómstóla. Þá vill framkvæmdastjórnin fá frekari upplýsingar frá ungverskum stjórnvöldum um almennt sjálfstæði dómstóla í landinu. Evrópusambandið hefur hótað því að hefja ekki viðræður um fjárhagsaðstoð, sem Ungverjar hafa beðið um, fyrr en sjálfstæði seðlabanka Ungverjalands hefur verið tryggt. Framkvæmdastjórnin getur einnig farið með málið fyrir Evrópudómstólinn.- gb
Mest lesið Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Í gæsluvarðhaldi fram í september Innlent RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent „Það er hetja á Múlaborg. Hetja sem sagði frá“ Innlent Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Innlent Ákærður fyrir fjórar nauðganir Erlent Fleiri fréttir Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Sjá meira