Logi þjálfar Stjörnuna - Rúnar Páll aðstoðar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2012 13:59 Logi Ólafsson og Rúnar Páll Sigmundsson. Mynd/Valli
Logi Ólafsson var í dag kynntur sem nýr þjálfari Stjörnunnar í Pepsi-deild karla en Logi stýrði Selfyssingum í sumar. Logi tekur við liðinu af Bjarna Jóhannssyni. Þetta var fyrst staðfest á heimsíðu stuðningsmannasveitar Stjörnunnar. Rúnar Páll Sigmundsson verður Loga til aðstoðar, en hann mun að auki sjá um þjálfun á 2.flokki félagsins og afreksþjálfun yngri leikmanna. Stjörnumenn enduðu í 5. sæti í Pepsi-deildinni í sumar og komust alla leið í bikarúrslitaleikinn. Liðið steig mörg stór skref undir stjórn Bjarna Jóhannssonar sem tók við liðinu í 1. deild en fyrsti titilinn lætur enn bíða eftir sér. Logi hefur gert bæði Víkinga og Skagamenn að Íslandsmeisturum.Tilkynningin inn á heimsíðu Silfurskeiðarinnar: Logi Ólafsson ráðinn þjálfari Stjörnunnar Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur ráðið Loga Ólafsson sem þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu til næstu tveggja ára. Rúnar Páll Sigmundsson verður Loga til aðstoðar, en hann mun að auki sjá um þjálfun á 2.flokki félagsins og afreksþjálfun yngri leikmanna. Ráðning Loga og Rúnars Páls staðfestir þann metnað knattspyrnudeildar Stjörnunnar að koma karlaliði félagsins í fremstu röð. Í ár vantaði herslumuninn á að koma liðinu í röð þeirra bestu á landinu. Leikmannahópur félagsins verður lítið breyttur milli ára, en leitast verður við að styrkja hann frekar. Því eru forsendur til að ná betri árangri en áður. Þá er mikill efniviður í yngri flokkum félagsins, sem hafa verið sigursælir á undanförnum árum. Logi Ólafsson hefur átt farsælan feril í þjálfun. Eitt af hans fyrstu verkefnum var að þjálfa meistaraflokk Stjörnunnar ásamt Kristni Björnssyni árið 1986. Hann hefur bæði þjálfað kvenna- og karlalandslið Íslands. Lið undir stjórn Loga hafa tvisvar hampað íslandsmeistaratitli og einu sinni bikartitli í karlaflokki. Logi er uppalinn Stjörnumaður. Rúnar Páll Sigmundsson hefur þjálfað lið í meistaraflokki karla sl. 5 ár. Hann starfaði hjá HK á árunum 2008 og 2009. Síðan þá hefur hann þjálfað lið Levanger í Noregi með góðum árangri. Rúnar Páll er uppalinn Stjörnumaður. Knattspyrnudeild Stjörnunnar býður þá Loga og Rúnar Pál velkomna heim og væntir mikils af þeirra framlagi til félagsins á næstunni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Féll á lyfjaprófi við að reyna að verða ólétt Sport Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ Íslenski boltinn Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Körfubolti Tryggði Japan jafntefli með því að skalla boltann af höfði liðsfélaga og inn Fótbolti Fleiri fréttir „Eitthvað þarf að breytast fyrir næsta leik“ „Smá þolinmæði sem þarf“ „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Sjá meira