Árásarmaðurinn fyrrum hermaður og kynþáttarhatari 6. ágúst 2012 12:52 Frá vettvangi í gær. mynd/afp
Maðurinn sem skaut sex til bana í musteri síka í borginni Oak Creek í Wisconsins í Bandaríkjunum í gær var fyrrum hermaður og kynþáttarhatari. Þetta hefur fréttastofan CNN eftir lögreglumanni sem vinnur að rannsókn málsins en nafn hans hefur ekki verið gert opinbert. Maðurinn sjálfur féll í skotbardaga við lögreglu fyrir utan musterið en lögreglumaður særðist lífshættulega í þeim átökunum og þrír safnaðarmeðlimir eru lífshættu á sjúkrahúsi. Fréttir af árásinni voru óljósar í upphafi en um tíma var talið að fleiri hefðu staðið að skotárásinni en svo virðist ekki vera. Þó er talið að hann hafi notið aðstoðar við árásina á einhverjum tímapunkti. Sjónarvottar að árásinni sögðu árásarmanninn vera sköllóttan, klæddan í hvítan stuttermabol, í svörtum gallabuxum og með húðflúr á hendinni sem á stóð 9/11 - sem vísar til hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september árið 2001. Sú lýsing á honum hafi gefið lögreglumönnum vísbendingu um að um einhverskonar hatursglæp var að ræða. Barack Obama bandaríkjaforseti fyrirskipaði Alríkislögreglunni að aðstoða lögregluna í Wisconsin við rannsókn málsins og í yfirlýsingu sagði hann skotárásina vera harmleik og að Síkar væru hluti af bræðralagi bandarísku þjóðarinnar. Um sjö hundruð þúsund síkar búa í Bandaríkjunum, flestir af Indverskum uppruna. Hægt er að þekkja menn innan trúarsafnaðarins á skeggi þeirra og túrbönum. Þeim er því oft ruglað saman við múslima en talið er að veist hafi verið að meðlimum safnaðarins um 700 sinnum í Bandaríkjunum frá 11. september árið 2001.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Fleiri fréttir Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Sjá meira