Borgarstjórinn í New York styður Obama Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. nóvember 2012 07:03 Michael Bloomberg skoðar afleiðingar óveðursins. Mynd/ AFP.
Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, lýsti í gær yfir stuðningi við Barack Obama, forseta Bandaríkjanna í forsetakosningunum sem haldnar verða í næstu viku. Borgarstjórinn hafði áður sagt að hann myndi hvorki styðja Obama né Mitt Romney mótframbjóðanda hans. En eftir að fellibylurinn Sandy reið yfir austurströnd Bandaríkjanna breyttist staðan. Bloomberg sagði í grein á vef Bloomberg fréttaveitunnar að hann myndi styðja þann frambjóðanda sem tæki loftslagsvísindum alvarlega. Í greininni segir Bloomberg líka að hann sé ósammála Romney varðandi ýmis félagsleg réttindi, svo sem um réttindi samkynhneigðra og um rétt kvenna til að gangast undir fóstureyðingar. Hann er líka ósammála Romney um löggjöf varðandi skotvopnaeign, en margir Repúblikanar vilja hafa slíka löggjöf sem allra frjálsasta. Báðir frambjóðendurnir munu hafa falast eftir stuðningi frá borgarstjóranum en hann var lengst af óákveðinn. Honum þykir Obama ekki hafa gengið vel við að fást við efnahagsmálin síðustu fjögur ár en hann telur aftur á móti að sú hugmyndafræði sem Romney aðhyllist sé einfaldlega of ólík sinni.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira