Samræmd sjúkraskrá nauðsynleg 8. janúar 2012 13:30 Mynd af sílíkonpúða. Mynd/Getty
Velferðaráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað til að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. Síðastliðið haust var kynnt skýrsla sem velferðaráðherra lét vinna um skipulag heilbrigðiskerfisins hér á landi. Það var Boston Consulting Group sem vann skýrsluna. Ein af niðurstöðum skýrslunnar er að verulega skorti á rafræn skráningarkerfi hér á landi og nákvæmar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt sé að tekin verði í notkun samræmd rafræn sjúkraskrá fyrir allt landi. Slíkt er ekki til staðar hér á landi eins og staðan er núna. Læknar hafa bent á að ef samtengd sjúkraskrá væri til staðar mætti bæta samskipti, forðast tvíverknað og auk þess væri hægt að spara verulegar fjárhæðir. Guðbjartur Hannesson, velferðaráðherra, segir að unnið sé að því að taka slíka skrá í notkun hér á landi. Það verði líklega gert í áföngum og reynt verði að samræma þau kerfi sem þegar eru til staðar. „Það er alveg klárt að þetta er eitt af forgangsverkefnunum. Það skiptir gríðarlega miklu máli að við séum með samræmda sjúkraskrá. Þar sem hægt er að fylgjast heilstætt með hverjum og einum sjúklingi og lesa og fylgja eftir þeim aðgerðum sem að gerðar eru á viðkomandi eða þeirri þjónustu sem að viðkomandi fær. Þetta skiptir máli upp á lyfin, þetta skiptir máli upp á að ekki sé verið að endurtaka hluti og gera þá aftur og aftur. Þetta er stórt verkefni sem að við klárum ekki á einhverjum vikum," segir Guðbjartur. Mikil umræða hefur verið hér á landi um gallaða sílikonpúða frá franska framleiðandanum PIP. Fjögur hundruð íslenskar konur eru með slíka púða en gögn um þær eru aðeins hjá lýtalækninum sem framkvæmdi aðgerðirnar. Guðbjartur telur að ef samræmd sjúkraskrá væri til staðar hefði hún nýst í málinu. „Ef að sérgreinalæknar og allir þeir sem að vinna jafnvel án þess að ríkið kosti þar einhverju til verða með í þessu kerfi, sem að ég tel nauðsynlegt að verði, þá gæti þetta hjálpað til já. Bæði til að grípa inn í eftir á og líka til að fylgjast með hvert umfangið er. Því að það er áhugavert í þessu líka í samanburðafræðum við þjóðirnar í kringum okkur hversu algengar þessar lýtaaðgerðir eru. Þannig það er ýmislegt sem vinnst með því að vera með sameiginlega sjúkraskrá."
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira