Erlent

Fóstureyðingar orðnar löglegar í Úrugvæ

Úrúgvæ er orðið annað landið í Suður Ameríku þar sem fóstureyðingar hafa verið gerðar löglegar. Hitt landið er Kúba.

Öldungadeild þingsins í Úrúgvæ hefur samþykkt að eyða megi fóstrum á fyrstu 12 vikum meðgöngunnar. Áður hafði neðri deild þingsins samþykkt frumvarp þessa efnis.

Miklar deilur hafa verið um lögmæti fóstureyðinga í landinu enda eru flestir íbúar þess kaþólskir. Þeir sem eru á móti þeim vilja að fóstureyðingar séu alfarið bannaðar og þeir sem eru hlynntir fóstureyðingum segja að frumvarpið gangi af skammt í þeim efnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×