Erlent

Barnaníðingar vekja óhug í Kanada

Lögreglan í Kanada hefur upprætt hring barnaníðinga og voru 21 þeirra handteknir í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar í gær.

Jafnframt var fjórtán ára dreng bjargað úr klóm eins níðingsins, en talið er að drengurinn hafi verið beittur kynferðislegu ofbeldi undanfarin fimm ár. Fjöldi af tölvudiskum með grófu barnaklámi var einnig gerður upptækur.

Málið hefur vakið mikinn óhug í Kanada og var sjónvarpað beint frá blaðamannafundi lögreglunnar um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×