Erlent

ESB kallar heim alla sendiherra sína frá Hvítarússlandi

Evrópusambandið ákvað í gærkvöldi að kalla heim alla sendiherra þeirra landa innan sambandsins sem staðsettir eru í Hvítarússlandi.

Þetta kemur í framhaldi af því að yfirvöld í Hvítarússlandi ákváðu nýlega að reka heim sendiherra Evrópusambandsins í landinu sem og sendiherra Póllands. Það eru deilur um mannréttindi í Hvítarússlandi sem valdið hafa þessari uppákomu.

Sökum mannréttindabrota hafa yfir 20 háttsettir dómarar og lögregluforingjar í Hvítarússlandi verið settir í farbann til landa Evrópusambansins.

Utanríkisráðherra Þýskalands segir að Hvítarússland sé síðasta einræðisríkið í Evrópu og að framkoma stjórnvalda þar verði ekki liðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×