Engin Margrét Lára og Katrín tæp 6. september 2012 08:00 Langvinn meiðsli Margrét Lára Viðarsdóttir finnur enn sömu verki og áður og missir af landsleikjunum við Norður-Írland og Noreg. fréttablaðið/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í lykilstöðu fyrir lokaleiki sína í undankeppni Evrópumótsins í Svíþjóð 2013. Staðan á toppi riðilsins er vissulega góð en landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson þarf hugsanlega að fara í síðustu tvo leikina án tveggja af allra mikilvægustu leikmönnum liðsins. Sigurður Ragnar tilkynnti í gær 22 manna hóp fyrir leikina tvo á móti Norður-Írlandi á Laugardalsvelli 15. september og á móti Noregi á Ulleval fjórum dögum síðar. Sigur á Norður-Írum tryggir sæti í umspili og þá bíður liðsins úrslitaleikur við Norðmenn um sæti í úrslitakeppni EM. Það brá samt örugglega mörgum þegar engin Margrét Lára Viðarsdóttir var á listanum og ekki batnaði ástandið þegar þjálfarinn ræddi þann möguleika að liðið yrði kannski líka án fyrirliðans Katrínar Jónsdóttur. Sigurður Ragnar var þó hvergi banginn þegar hann ræddi við blaðamenn í gær og hóf fundinn á því að ræða ungu stelpurnar en fimm 17 og 18 ára stelpur er í hópnum að þessu sinni. „Það kemur kannski á óvart að það eru margir ungir leikmenn í hópnum en það eru allt leikmenn sem hafa staðið sig mjög vel í Pepsi-deildinni. Það eru spennandi leikmenn að koma upp," sagði Sigurður Ragnar. Sandra María Jessen og Elín Metta Jensen eru báðar fæddar 1995 en samt búnar að skora 17 og 16 mörk í Pepsi-deildinni í sumar. Það má búast við að önnur þeirra fái að spila því liðið þarf á markaskorara að halda. Enginn má vera ómissandi„Auðvitað vildum við hafa Margréti Láru, okkar aðalmarkaskorara, og Katrínu, fyrirliðann okkar í hjarta varnarinnar. Það verður að vera þannig að enginn sé ómissandi og við verðum að þróa liðið okkar þannig að enginn sé ómissandi," sagði Sigurður Ragnar. Margrét Lára ætlaði að koma af krafti inn í haust eftir að hafa hvílt sig á fótboltaæfingum í allt sumar. „Hún var í sumar að hreyfa sig í annarri hreyfingu heldur en fótbolta. Hún var að hjóla mikið, synda og styrkja sig. Við vonuðumst til að hún myndi ná sér af þessum meiðslum og verða betri. Hún fór síðan til Kristianstad og markmiðið hennar var að spila á móti Malmö. Hún fór á tvær knattspyrnuæfingar fyrir þann leik og fékk mjög slæm einkenni aftur og þau sömu og hún var að finna fyrir í upphafi sumars og hefur verið að finna fyrir undanfarin ár," sagði Sigurður Ragnar og bætti við: Margrét Lára á leið í aðgerð„Þetta er búið að vera mjög erfitt fyrir hana í langan tíma en samt er ótrúlegt hvað hún hefur náð að spila þrátt fyrir þessi meiðsli. Hún var markahæst í Svíþjóð með þessi meiðsli og spilaði fyrir Potsdam, eitt besta félagslið í Evrópu, með þessi meiðsli. Maður getur bara ímyndað sér hvernig hún verður ef hún nær sér góðri af þessum meiðslum sem hún vonandi gerir. Hún ætlar að leita sér frekari lækninga og jafnvel fara í aðgerð," sagði Sigurður Ragnar og það er líka mikil óvissa með fyrirliðann. „Þetta eru gríðarlega mikilvægir leikir fyrir okkur og Katrín er fyrirliðinn okkar. Hún spilar líka stöðu sem við erum ekki með mikla breidd í. Við höldum henni inni og vonum það besta. Katrín tognaði aftan í læri 4. júlí og hún hefur ekki spilað leik síðan. Hún hefur verið að æfa og halda sér í formi og smátt og smátt hefur hún verið að skána," sagði Sigurður Ragnar. Ferskir straumar inn í liðiðSigurður Ragnar kallar nú á fimm mjög unga leikmenn fyrir afar mikilvæga landsleiki. „Fjórar af þessum leikmönnum fóru mjög langt með 17 ára landsliðinu í Evrópukeppninni eða alla leið í undanúrslitin. Þær eru vanar að ná árangri og eru mjög metnaðarfullar. Þær koma kannski með ferska strauma inn í landsliðið. Ég held að við munum sjá einhverjar þeirra í öðrum eða jafnvel báðum leikjunum. Það er bara að fjölmenna á völlinn og sjá ungu og efnilegu stelpurnar okkar og svo allar hinar sem eru orðnar svo góðar," sagði Sigurður Ragnar að lokum.
Fótbolti Mest lesið Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Golf Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Orri Steinn fram úr Eiði Smára Fótbolti 18 ára Tómas skoraði fyrstu deildarmörkin og fagnaði titlinum Fótbolti Glæsimark fyrirliðans kveikti í endurkomu Vestra Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - KA 1-2 | Dalur FH-inga dýpkar Íslenski boltinn „Það er ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu“ Körfubolti Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Enski boltinn Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 95-70 | Njarðvíkingar Íslandsmeistarar Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - Víkingur R. 0-2 | Víkingar reimdu markaskóna í síðari hálfleik Fótbolti Fleiri fréttir Orri Steinn fram úr Eiði Smára „Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ „Ekki viss hvort ég skoraði eða ekki“ „Hæð og þyngd er ekki allt í fótbolta“ „Fyrri hálfleikur líklega sá besti í sumar“ „Sárt að fá á sig sigurmark í lokin“ „Þóttumst vita að við myndum ekki vinna hvern einasta leik“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 3-2 | Dramatískur endurkomusigur hjá Valsmönnum Uppgjörið: FH - KA 1-2 | Dalur FH-inga dýpkar Uppgjör: Þór Ak. - ÍA 1-2 | Lárus sótti sigur í Þorpið Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum 18 ára Tómas skoraði fyrstu deildarmörkin og fagnaði titlinum Uppgjörið: KR - Fram 2-2 | Gestirnir jöfnuðu á síðustu stundu Keflavík - Stjarnan 1-1| Stjarnan slapp með stig frá Keflavík í skemmtilegum leik Glæsimark fyrirliðans kveikti í endurkomu Vestra Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Stefán missti af umspilinu með grátlegum hætti „Við munum standa þétt við bakið á Ingvari“ Glódís fékk góða hvíld fyrir hátíðarmóttökuna í ráðhúsinu Højlund skoraði í sigri sem tryggði honum samning hjá Napoli Þjálfari Juventus pirraður á fagnandi Alberti Uppgjörið: ÍBV - Víkingur R. 0-2 | Víkingar reimdu markaskóna í síðari hálfleik Mourinho fór taplaust í gegnum tímabilið: „Framtíð mín mun ráðast í vikunni“ Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Gísli Gotti varð Póllandsmeistari annað árið í röð Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ „Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Sjá meira