Hinn tuttugu og tveggja ára Liam Warriner frá Ástralíu þykir hafa sloppið nokkuð vel eftir að hann „múnaði" á Elísabetu Bretlandsdrottningu þegar hún var í opinberri heimsókn í landinu á síðasta ári.
Þegar Elísabet gekk framhjá mannfjöldanum ásamt eiginmanni sínum Filipusi prinsi, í bænum Brisbane á síðasta ári skellti Warriner buxunum niður og múnaði á hjónin. Hann var búinn að klemma ástralska fánann á milli rasskinnanna.
Hann var ákærður fyrir athæfið og var dæmdur í sex mánaða fangelsi í undirrétti og til að greiða sekt. Í dag var smá dómur mildaður og þarf hann nú bara að borga sekt upp á tæpar hundrað þúsund krónur.
Fyrir utan dómsalinn í dag sagði Warriner að hann sæi ekki eftir athæfi sínu. Hann sagðist vera stoltur af því að vera á móti konungsveldi.
Þarf að borga 100 þúsund krónur fyrir að múna á Bretlandsdrottningu

Mest lesið
Fleiri fréttir
