Fótbolti

Óvæntur sigur Breta á Brasilíu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Houghton skorar sigurmark Breta frammi fyrir 70 þúsund áhorfendum á Wembley.
Houghton skorar sigurmark Breta frammi fyrir 70 þúsund áhorfendum á Wembley. Nordicphotos/getty
Kvennalandslið Breta vann óvæntan sigur á landsliði Brasilíu í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í dag.

Stephanie Houghton skoraði eina mark leiksins strax á 2. mínútu. Þær bresku fengu kjörið tækifæri til að auka muninn í tvö mörk snemma í síðari hálfleik en vítaspyrna Kelly Smith var varin.

Bæði lið voru örugg um sæti í átta liða úrslitum keppninnar en leikurinn skar úr um hvort liðið færi með sigur af hólmi í riðlinum.

Bretar enduðu með fullt hús stiga í riðlinum og mæta Kanada í átat liða úrslitum. Brasilía mætir hins vegar Japan.

Í hinum tveimur viðureignunum eigast við Bandaríkin og Nýja Sjáland annars vegar og Svíþjóð og Frakkland hins vegar.

Bandaríkin eiga titil að verja frá því í Peking fyrir fjórum árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×