Rooney og Welbeck með tvö gegn San Maríno | England í toppsætið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. október 2012 14:11 Wayne Rooney skoraði úr vítaspyrnu í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Getty
Englendingar tylltu sér í efsta sæti H-riðils í undankeppni HM 2014 er liðið lagði San Marínó 5-0 á þéttsettnum Wembley-leikvanginum í kvöld. Heimamenn þurftu að bíða töluvert lengur eftir fyrsta markinu en reiknað hafði verið með. Wayne Rooney, sem bar fyrirliðabandið í kvöld, kom þeim á bragðið með marki úr vítaspyrnu á 35. mínútu. Aðeins tveimur mínútum síðar bætti Danny Welbeck, félagi hans hjá Manchester United, við marki eftir undirbúning Aaron Lennon. Staða heimamanna því orðin þægileg þegar flautað var til hálfleiks. Þeir tæplega 85 þúsund áhorfendur sem mættu á leikinn þurftu aftur að bíða nokkuð lengi eftir fyrsta markinu í síðari hálfleik. Rooney skoraði það og um leið sitt annað mark á 70. mínútu. Líkt og í fyrri hálfleiknum bætti Welbeck við marki aðeins tveimur mínútum síðar, nú eftir undirbúning Tom Cleverley, og staðan 4-0. Alex Oxlade-Chamberlain bætti við fimmta og fallegasta marki leiksins þegar hann opnaði markareikning sinn fyrir enska landsliðið með marki á 77. mínútu. Eftir sigurinn eru Englendingar á toppi riðilsins með 7 stig en hafa leikið leik meira en Svartfellingar og Pólverjar sem hafa 4 stig. Einn annar leikur fór fram í riðlinum í kvöld en þá gerðu Moldóvar og Úkraínumenn markalaust jafntefli í Moldavíu. Á þriðjudaginn sækja Englendingar Pólverja heim í Varsjá, Úkraína tekur á móti Svartfjallalandi og San Marínó fær Moldavíu í heimsókn.
Enski boltinn HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Handbolti Fleiri fréttir Telur starf Guardiola í hættu: „Hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta“ Óttast að Grealish verði lengi frá Feginn Frank fékk sér tvö stór rauðvínsglös Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Tvenna Jesus, óvænt töp, veisla í Madríd og langþráður sigur Lærir inn á nýtt umhverfi: „Ég mun gera mörg mistök“ Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn KSÍ staðfestir leik gegn heimilislausa HM-liðinu Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Ísland spilar við gestgjafa HM og Haítí Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim Sjá meira