Erlent

Sex ára fangelsi fyrir að spá ekki fyrir um jarðskjálfta

Frá L-Aquila, 6. apríl árið 2009.
Frá L-Aquila, 6. apríl árið 2009. MYND/AFP
Sex ítalskir vísindamenn og einn fyrrverandi embættismaður voru í dag dæmdir í sex ára fangelsi fyrir að hafa brugðist almenningi og ekki varað við yfirvofandi jarðskjálfta.

Þannig voru mennirnir fundnir sekir um manndráp en alls létust 309 þegar jarðskjálfti, 6.3 að styrkleika, jafnaði bæinn L'Aquila við jörðu, 6. apríl árið 2009.

Mennirnir sátu í nefnd sem vann að áhættumati vegna mögulegra náttúruhamfara.

Saksóknari í málinu benti á að mennirnir hefðu gefið út traustvekjandi yfirlýsingar aðeins viku fyrir skjálftann mikla. Verjandi var á öðru máli og sagði það vera ómögulegt að spá nákvæmlega fyrir um jarðskjálfta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×