Siggi Raggi: Eigum betra lið en fyrir fjórum árum Kolbeinn Tumi Daðason á Laugardalsvelli skrifar 25. október 2012 21:16 „
Þetta er bara geðveikt. Við erum að uppskera eftir tveggja ára vinnu og gaman að svo margir gátu tekið þátt í því með okkur," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari Íslands eftir 3-2 sigur Íslands á Úkraínu í kvöld. „Áhorfendametið var slegið og stuðningurinn var frábær. Í fyrsta skipti þurfti að opna stúkuna hinumegin og það er áfangi. Við fyllum hana seinna," sagði Sigurður Ragnar. Vallarmetið á kvennalandsleik var slegið því 6.647 mættu í Dalinn til að hvetja stelpurnar okkar. Sigurður hvatti landsmenn til að fjölmenna á völlinn í pistli sem fór sem eldur í sinu um netheima í aðdraganda leiksins. „Ég hafði alveg trú á því að við gætum fyllt stúkuna. Ég held að seldir miðar hafi verið fleiri en fólkið sem mætti á leikinn. Það komu kannski ekki allir sem keyptu miða en sýndu engu að síður stuðning með því að kaupa miða. Það er frábært. Ég held að stuðningurinn hafi skilað sér vel inn á völlinn. Við sýndum karakter, baráttu og vilja og unnum leikinn. Ég er virkilega stoltur af liðinu," sagði Sigurður Ragnar. Klúðraði málunum með að hafa Dagnýju á bekknumLeikurinn í kvöld var nánast spegilmynd af fyrri leik liðanna. Ísland missti niður tveggja marka forskot en tryggði sér svo sætan sigur. „Í stöðunni 2-0 held ég að mér hafi liðið svipað og leikmönnunum. Það var svolítið spennufall og leikmenn héldu að þetta væri komið. Svo var ekki. Úkraína gefst aldrei upp, kom tilbaka og jafnaði líkt og í leiknum úti." „Það fór aðeins um okkur í stöðunni 2-2 þegar vantaði bara eitt mark upp á til þess að fara í framlengingu. Sem betur fer náði Dagný að klóra í bakkann og klára leikinn fyrir okkur," sagði Sigurður Ragnar og gerði lítið úr því að stuttu áður hafði hann skipt Dagnýju inná. Fullkomin skipting. „Ég held ég hafi frekar klúðrað málunum með því að byrja ekki með hana inná fyrst hún spilaði svona vel," sagði Sigurður Ragnar og hló. Liðið sterkara en fyrir fjórum árumÍslenska landsliðið verður með í lokakeppni EM í annað sinn. Liðið komst í fyrsta skipti þangað fyrir fjórum árum en keppt var í Finnlandi sumarið 2009. „Það er aðeins öðruvísi að vera að fara aftur. Hluti af hópnum hefur aldrei farið áður og jákvætt fyrir þær að upplifa þetta í fyrsta skipti. Það er líka góð blanda því við höfum reynda leikmenn sem hafa farið áður og vita út á hvað þetta gengur. Vonandi tekst okkur að gera ennþá betri hluti en síðast," segir Sigurður Ragnar sem telur íslenska liðið sterkara nú en fyrir fjórum árum. „Já, mér finnst við eiga betra lið en það eru líka aðrar þjóðir sem hafa bætt sig. Það hafa orðið miklar framfarir hjá kvennalandsliðunum. Við eigum lið sem getur unnið hvaða lið sem er á góðum degi. Við getum hins vegar líka misstígið okkur og klúðrað gegn lakari liðum. Við þurfum að halda vel á spöðunum og halda áfram að bæta okkur."
Fótbolti Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Fleiri fréttir Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Uppgjör: Stjarnan-Þór/KA 3-2: Stjörnukonur aftur á sigurbraut Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri Þróttur - Fram | Þurfa að svara fyrir afhroð síðustu umferðar KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar „Fólk meiðist og aðrir þurfa að taka við“ Virkar eins og forfallakennari Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Sjá meira