Þetta lið stefnir alltaf á sigur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. október 2012 06:00 Allir leikmenn íslenska liðsins eru heilir heilsu og klárir í slaginn í dag. fréttablaðið/daníel
Íslenska kvennalandsliðið á mjög erfiðan leik fyrir höndum í dag er það sækir Úkraínu heim í umspili fyrir EM í Svíþjóð en það mót fer fram á næsta ári. Þetta er fyrri leikur liðanna. Síðari leikurinn fer fram á Laugardalsvelli næstkomandi fimmtudag. Sigurvegarinn í umspilinu fær farseðil á mótið og því að miklu að keppa. Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir að sitt lið sé klárt í slaginn. Það væsi ekki um liðið í sólinni á Úkraínu þar sem liðið býr á góðu hóteli við ströndina. „Hér hefur allt verið til fyrirmyndar. Hótelið gott, maturinn fínn sem og æfingavellirnir. Þess utan erum við ekki að glíma við nein meiðsli í hópnum og vonandi kemur ekkert óvænt upp á," sagði Sigurður Ragnar við Fréttablaðið í gær en liðið var þá á leið á æfingu á sjálfum keppnisvellinum. „Við rennum aðeins blint í sjóinn gagnvart þessu liði enda ekki mætt þeim lengi. Við vitum þó að þetta er mjög sterkt lið og verkefnið erfitt. Liðið verður að vera fljótt að læra í þessum elik hvernig sé best að spila. Við gætum því gert ýmsar breytingar í leikskipulagi meðan á leik stendur eftir því hvernig gengur hjá okkur," sagði Sigurður Ragnar en hann segir sitt lið vera búið að skoða leik andstæðinganna í þaula. Úkraínska liðinu gekk illa á heimavelli í undankeppninni en var aftur á móti að vinna útileikina sína. Það gæti því verið lag fyrir íslenska liðið í þessum leik. „Við leggjum þennan leik upp þannig að þetta sé bara úrslitaleikur og hugsum ekkert um seinni leikinn. Það eru allar aðstæður hér til þess að spila góðan fótbolta en við vitum ekkert hvaða aðstæður bíða okkar síðan á Íslandi," sagði Sigurður þannig að það verður kýlt á það í leiknum. „Þetta lið stefnir alltaf á sigur. Það hefur ekkert breyst. Við ætlum að mæta grimmar og selja okkur mjög dýrt. Það er spáð ágætu veðri og vonandi er keppnisvöllurinn góður."
Fótbolti Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Enski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Real Betis - Real Sociedad | Tímabilið hefst hjá Orra Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Þór/KA - Valur | Valskonur í færi á að koma sér úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Mikael kom inn af bekknum í slæmu tapi gegn Benfica „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Brann náði í frábær úrslit ytra Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Sjá meira