Erlent

Sarkozy boðar fleiri aðgerðir

Franska lögreglan að verki.
nordicphotos/AFP
Franska lögreglan að verki. nordicphotos/AFP
Nítján manns voru handteknir í gærmorgun í Frakklandi vegna gruns um að þeir tengist öfgahópum íslamista, sem hugsanlega séu með áform um hryðjuverk. Mikil spenna hefur ríkt í Frakklandi frá því ungur maður drap sjö manns í Toulouse og Montauban. Stjórnvöld leggja mikla áherslu á öryggismál og hættuna af hryðjuverkum. Á hinn bóginn fer ótti vaxandi meðal múslima um að almenningur stimpli þá alla sem hryðjuverkamenn.

Nicolas Sarkozy forseti stendur í ströngu þessar vikurnar í kosningabaráttu fyrir forsetakosningar, sem haldnar verða innan fárra vikna. Skoðanakannanir hafa ekki verið honum vilhallar, en í von um að afla sér meira fylgis hefur hann meðal annars boðað harðari stefnu gagnvart útlendingum.

„Það verða fleiri aðgerðir áfram sem gera okkur kleift að vísa burt úr landi ákveðnum hópi fólks sem hefur enga ástæðu til að vera hérna,“ segir hann. „Það er skylda okkar að tryggja öryggi frönsku þjóðarinnar. Um það höfum við ekkert val.“ - gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×