Greiðslu úr neyðarsjóði frestað 13. nóvember 2012 23:45 Fjármálaráðherra Grikklands á tali við yfirmann Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fréttablaðið/AP
Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins hafa samþykkt að Grikkir fái frest til ársins 2016, eða tveimur árum lengur en áður hafði verið krafist, til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir í efnahagsmálum svo hægt verði að hefjast handa við að draga úr skuldabyrði gríska ríkisins. Hins vegar var ákvörðun frestað um næstu greiðslu til Grikkja úr neyðarsjóðum ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fjármálaráðherrarnir vilja einnig að Grikkir fái frest til ársins 2022 til þess að ná skuldum ríkisins niður í 120 prósent af landsframleiðslu. Um þetta er hins vegar ágreiningur við AGS, sem vill halda sig við fyrri áætlun um að skuldirnar verði komnar niður í 120 prósent árið 2020. Christine Lagarde, yfirmaður AGS, telur vænlegra að evruríkin samþykki að taka á sig eitthvað af skuldum Grikklands, en fjármálaráðherrarnir telja sig ekki geta sannfært kjósendur sína heima fyrir um að slíkt sé réttlætanlegt. Á fundi fjármálaráðherranna í Brussel þokuðust lítt áfram áform um að koma á bankabandalagi með sameiginlegu bankaeftirliti og innistæðutryggingum.- gb
Mest lesið Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Innlent Læti í miðbænum og í veðrinu Innlent Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Erlent Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Innlent Hávaðarok á Snæfellsnesi og Faxaflóa Innlent Opnun Samverks á Hellu fagnað Innlent Fleiri fréttir Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Létu sprengjum rigna á Kænugarð Segja 30 hafa látist í skotárás Ísraelshers við dreifingu neyðargagna Kanada í hóp þeirra sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu Sjö dáið úr hungri síðasta sólarhringinn Rannsaka tengsl þyngdarstjórnunarlyfja við bráða brisbólgu Gargaði á flokksfélaga sína Fyrsta ástralska geimflaugin flaug í fjórtán sekúndur Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn Vill greiða sex milljarða tryggingu til að losna úr haldi Pokrovsk riðar til falls 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir Sjá meira