Erlent

Fátækasti forseti heimsins býr á bóndabæ í Úrugvæ

Jose Mujica forseti Úrugvæ er óumdeilanlega fátækasti forseti heimsins en hann býr á bóndabæ eiginkonu sinnar og gefur 90% af launum sínum til fátækra.

Fjallað er um þennan litríka forseta á vefsíðu BBC. Þar segir að Mujica gæti búið í veglegri forsetahöll í höfuðborginni Montevideo en kýs að búa á bóndabæ eiginkonu sinnar þar sem þau hjónin stunda blómarækt. Á bænum er vatnið sótt í brunn, þvotturinn hangir á snúrum utandyra og aðeins tveir lögreglumenn eru til staðar til að gæta öryggis forsetans.

Mujica gefur 90% af launum sínum til fátæks fólks og þeirra sem vilja koma á fót smáum fyrirtækjum.Það sem hann heldur eftir af laununum samsvarar lágmarkslaunum í Úrugvæ eða um 100.000 krónum. Eina skráða eign forsetans er VW bjalla af árgerðinni 1987.

Mujica var kosinn forseti árið 2009 þá orðin rúmlega sjötugur að aldri. Á síðustu öld var hann hinsvegar einn af leiðtogum Tupamaros skæruliðasamtakanna, særðist sex sinnum í skotbardögum og og sat 14 ár í fangelsi. Hann átti síðan stóran þátt í að gera Tupamaros að löglegri stjórnmálahreyfingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×