Ráðgáta hvað olli dauða tvíburasystra í Kaliforníu 8. mars 2012 22:00 Patricia og Joan Miller á sínum yngri árum. mynd/AP
Lögreglan í Bandaríkjunum hefur loks haft upp á ættingjum tvíbura sem létust með stuttu millibili á heimili sínu á afskekktu svæði í Kaliforníu. Síðustu áratugi höfðu konurnar lítið sem ekkert samband við umheiminn. Systurnar Patricia og Joan Miller bjuggu við Lake Tahoe í Kaliforníu í tæp 40 ár. Þær töluðu aldrei við nágranna sína. Þær voru 73 ára gamlar þegar þær létust skyndilega á heimili sínu. Heilbrigðisstarfsmaður kom að konunum. Patrice fannst í svefnherberginu á meðan Joan fannst á ganginum. Ekki er vitað hvað dró konurnar til dauða. Ómögulegt reyndist að hafa upp á ættingjum systranna og voru nöfn þeirra því opinberuð. Stuttu seinna höfðu systkinbörn þeirra samband við lögregluyfirvöld. Ættingjar systranna höfðu ekki heyrt frá þeim í áraraðir. En þó svo að ættingjarnir hafi varpað ljósi á aðstæður systranna þá er dauði þeirra enn ráðgáta. Réttarmeinafræðingar segja að konurnar hafi verið látnar í nokkrar vikur áður en þær fundust. Engin ummerki voru um átök á heimilinu. Enn fremur var heimilið snyrtilegt og því er ekki talið að konurnar hafi þjáðst af geðröskunum. Að auki höfðu konurnar verið við góða heilsu. „Það lítur út fyrir að önnur hafi dáið á undan hinni," sagði rannsóknarlögreglumaðurinn Matt Harwood. „Að öllum líkindum hefur hin ekki þolað sorgina og látist stuttu seinna."mynd/APPatricia og Joan giftust aldrei. Þær áttu hvorki börn né gæludýr og virtust aðeins kunna að meta félagsskap hverrar annarrar. Einmana dauði þeirra er mikil andstæða við töfraljóma æsku þeirra. Á sínum yngri árum voru systurnar söngkonur. Þær komu reglulega fram í þættinum „The Hoffman Hayride" á sjötta áratugnum. Þær skemmtu einnig á herstöðum víða um Bandaríkin. Systurnar skráðu hvor aðra sem nánasta ættingja, samkvæmt lögreglunni í Kaliforníu.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Sjá meira