Fótbolti

Kolbeinn hvíldur í markaveislu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Engin áhætta tekin með Kolbein.
Engin áhætta tekin með Kolbein. NORDIC PHOTOS / Getty
Kolbeinn Sigþórsson kom ekkert við sögu þegar lið hans Ajax rúllaði yfir Nec á útivelli 6-1. Ajax var 4-0 yfir í hálfleik Frank de Boer þjálfari Ajax ákvað að hvíla Kolbein sem leikið hafði tvo heila leiki á einni viku.

Jody Lukoki opnaði markaveisluna á 13. mínútu. Daninn Christian Eriksen bætti öðru marki við á 17. mínútu og þremur mínútum síðar var staðan orðin 3-0. Svíinn Tobias Sana þar að verki. Theo Janssen bætti fjórða markinu við sex mínútum fyrir hálfleik og úrslit leiksins ráðin þó enn ætti eftir að leika 45 mínútur.

Framherjinn Siem de Jong skoraði fimmta markið á áttundu mínútu seinni hálfleiks en tíu mínútum síðar náði varamaðurinn Bram Nuytinck að minnka muninn. Það var svo Sana sem átti lokaorðið í leiknum þegar hann skoraði sjötta mark Ajax þegar sjö mínútur voru eftir af leiknum.

Ajax er í öðru sæti deildarinnar með fjögur stig í tveimur fyrstu leikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×