Vilanova ætlar að koma fljótlega til baka 20. desember 2012 12:45 Í gær var greint frá því að Tito Vilanova, þjálfari spænska knattspyrnuliðsins Barcelona, þurfi að fara í aðgerð vegna krabbameins. Nordic Photos / Getty Images
Í gær var greint frá því að Tito Vilanova, þjálfari spænska knattspyrnuliðsins Barcelona, þurfi að fara í aðgerð vegna krabbameins. Vilanova er með krabbamein í munnvatnskirtli en hann ætlar sér ekki að vera lengur en í sex vikur frá störfum. Jordi Roura, aðstoðarþjálfari liðsins, mun taka við á meðan Vilanova verður í veikindaleyfi. „Ég verð fjarverandi í einhvern tíma en ég kem fljótlega til vinnu á ný," er haft eftir Tito Vilanova í spænska dagblaðinu Mundo Deportivo. Hann mun fara í lyfjameðferð eftir að aðgerðin hefur verið framkvæmd. „Við verðum að láta hlutina ganga eins eðlilega og hægt er, en vissulega setur þetta daglegt starf okkar aðeins úr skorðum. Tito er þjálfarinn og hann verður ekki á svæðinu í nokkrar vikur," sagði Sandro Rosell forseti Barcelona. „Tito er sterkur einstaklingur og við erum sannfærðir um að hann kemur fljótlega til baka." Andoni Zubizarreta, yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, vísar því á bug að Pep Guardiola, fyrrum þjálfari liðsins muni taka við liðinu tímabundið. Iker Casillas, markvörður spænska landsliðsins og Real Madrid, er einn fjölmargra knattspyrnumanna á Spáni sem hefur sent Tito Vilanova baráttukveðju. „Tito, það styðja þig allir í þessari baráttu. Það eru engar líkur á því að þú tapir þessum leik," skrifaði Casillas á fésbókarsíðu sína.
Fótbolti Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Fleiri fréttir „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Sjá meira