Var Whitney Houston drepin? 27. desember 2012 11:14 Huebl segist vera á þeirri skoðun að lögreglan í Beverly Hills hafi ekki rannsakað lát Houston nægilega vel, því hún hafi verið hrædd um neikvæða umfjöllun um hverfið og Beverly Hilton hótelið. Mynd/AFP
Whitney Houston var drepin af fíkniefnasölum og það eru til upptökur úr öryggismyndavélum sem sanna það. Þetta segir Paul Huebl einkaspæjari sem hefur rannsakað dauða hennar síðustu mánuði. Söngkonan fannst látin á hótelherbergi sínu í febrúar síðastliðnum en talið var að hún hafi drukknað í baðkari eftir að hafa tekið inn of mikið af kókaíni, marijúana og lyfseðilsskyldum lyfjum. Einkaspæjarinn segir að margt bendi til þess að það sé ekki rétt og hefur afhent bandarísku alríkislögreglunni sönnunargögn máli sínu til stuðnings. Huebl segir að hún hafi fengið mikið magn af kókaíni sent til sín daginn áður en hún lést og myndbandsupptöku heyrist þegar hún segir: „Ég er orðin leið á þessu rugli". Hann segir að nokkrir fíkniefnasalar hafi komið inn í herbergið nokkrum klukkutímum áður en hún lést, þar sem hún skuldaði þeim um eina og hálfa milljón dollara vegna fíkniefnakaupa. Þeir sjáist á öryggismyndavélum fara inn á hótelið sem söngkonan dvaldi á. Hann heldur því svo fram að þeir hafi drepið hana og komið henni fyrir í baðkarinu. „Á líki hennar má sjá augljós varnarsár sem fólk fær þegar það berst fyrir lífi sínu," segir hann. Þá hafi verið búið að rústa hótelherberginu, sem bendi til að átök hafi átt sér stað þar. „Ég held að ef þú setur allt þetta saman gefi það augaleið að þarna sé um morð að ræða." Huebl segist vera á þeirri skoðun að lögreglan í Beverly Hills hafi ekki rannsakað lát Houston nægilega vel, því hún hafi verið hrædd um neikvæða umfjöllun um hverfið og Beverly Hilton hótelið. Hann vill ekki gefa upp hver það var sem réð hann til að rannsaka dauða söngkonunnar.Umfjöllun Daily Mail.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Fleiri fréttir Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Sjá meira