Fótbolti

Giovinco hélt upp á 12.12.12 með eftirminnilegum hætti

Sebastian Giovinco, leikmaður ítalska liðsins Juventus, gerði daginn enn eftirminnilegri með skemmtilegum talnaleik þegar Juventus mætti Cagliari í síðari viðureign þeirra í ítölsku bikarkeppninni.
Sebastian Giovinco, leikmaður ítalska liðsins Juventus, gerði daginn enn eftirminnilegri með skemmtilegum talnaleik þegar Juventus mætti Cagliari í síðari viðureign þeirra í ítölsku bikarkeppninni. Nordic Photos / Getty Images
Það fór varla framhjá neinum að í gær að á dagatalinu var, 12.12.12. Sebastian Giovinco, leikmaður ítalska liðsins Juventus, gerði daginn enn eftirminnilegri með skemmtilegum talnaleik þegar Juventus mætti Cagliari í síðari viðureign þeirra í ítölsku bikarkeppninni.

Giovinco skoraði eina mark leiksins sem jafnframt var 12. mark hans á leiktíðinni, að sjálfsögðu skoraði hann markið á 12. mínútu og til að gera söguna enn skemmtilegri þá leikur Giovinco í keppnistreyju með númerið 12 á bakinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×