Innlent

Líkir skrautinu sínu við Mustang

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
„Ef þú kaupir þér Mustang þá ertu ekki að hugsa um hversu miklu hann eyðir" segir Suðurnesjamaðurinn Grétar Ólafsson um einar veglegustu skreytingar landsins og rafmagnsreikninginn sem hann fær að lokinni jólahátíð. Hugrún Halldórsdóttir og Baldur Hrafnkell myndatökumaður kynntu sér dýrðir þeirra sem keppa um titilinn Ljósahús Reykjanesbæjar í morgun.

Það má segja að Reykjanesbær sé jólabær okkar Íslendinga en þar eru húsin hver öðrum flottari. Þetta hús, að Týsvöllum 1, er á meðal þeirra tíu sem koma til greina í keppninni ár en eins ótrúlegt og það hljómar þá var það hannað með jólaskreytingar í huga.

Hvað eru þetta margar perur, veistu það?

„Tja, tuttugu til tuttugu og tvö þúsund," segir Grétar Ólafsson, eigandi Ljósahúss Reykjanesbæjar 2011

Og hvað tekur langan tíma að setja þetta allt upp?

„Þetta hefur tekið mig viku að setja upp en í ár var ég heila fjóra daga frá morgni til kvölds, enda fékk ég góða hjálp frá stráknum mínum og tengdasyni."

Hvernig er það að eyða fjórum dögum í þetta?

„Það er bara æði. Þetta er mitt hobbý í desember. Ég spila ekki golf, ég horfi á fótbolta og skreyti."

Húsið laðar skiljanlega marga að en á hverju kvöldi í kringum miðnætti koma þrjár til fjórar rútur fullar af forvitnum ferðamönnum til Grétars.

„Svo koma leikskólarnir milli 8:00 og 9:00 og fá að labba hérna um garðinn," segir Grétar.

Hægt verður að kjósa um ljósahús Reykjanesbæjar á vef víkurfrétta þar til á miðnætti en þetta er í fyrsta sinn sem þessi háttur er hafður á því sérstök nefnd hefur hingað til valið sigurvegarann.

„Ég sagði reyndar núna að þetta væri síðasta árið sem ég myndi skreyta, ég ætla að minnka þetta. Ég er farinn að kvíða aðeins fyrir þessu. Ég er náttúrulega orðinn eldri en ég var fyrir 16 árum, þetta kemur bara í ljós," segir Grétar.

En það verður ljúft að vinna í ár ef þetta verður síðasta árið?

„Það er alltaf ljúft að vinna og ég hef mikið keppnisskap."

Grétar segir að verðlaunafé fari í rafmagnsreikninginn sem skreytingar af þessum toga kosta.

„Þetta er 30 þúsund kall sem þú færð upp í hann," segir hann.

Er það að dekka allt?

„Veistu ég veit það ekki, ég hef aldrei pælt í því. Menn spyrja mig oft hvað þetta kosti og ég bara segi ég hef ekki hugmynd. Ef þú kaupir þér Mustang þá pælirðu ekki í því hverju hann eyðir," segir Grétar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×